06.06.2012 09:58

Vaktir á Landsmóti

Hestamenn athugið!

Vaktir hestamannafélaganna á Landsmóti 2012 eru með sama móti og áður.

Helstu störf á þeim vöktum eru eftirfarandi:

Hliðvarsla

Aðstoð við fótaskoðun

Innkomustjórnun

Upplýsingamiðstöð

Aðstoð á skrifstofu

Ýmis störf á svæði

Aukavaktir

 

Starfsmenn vaktana skulu hafa náð 18.ára aldri.

Starfsmenn hafa aðgang að mótinu á meðan á vöktum þeirra stendur en fá ekki almennan aðgöngumiða. Einnig má nefna að starfsmönnum er skaffaður matur á meðan á vakt stendur.

 

Þeir sem hafa áhuga á því að starfa á þessum vöktum eru beðnir um að hafa samband í gegnum netfangiðlandsmothugrun@gmail.com við fyrsta tækifæri og gildir þar reglan að fyrstur kemur fyrstur fær.

Mikilvægt er að senda Nafn, kennitölu, nafn hestamannafélags og símanúmer. Mér til aðstoðar í ár verðu Ragna Rós Bjarkadóttir og munum við hafa samband í framhaldinu til þess að finna útúr því hvað hentar hverjum og hvernær.

 

Þessar vaktir tókust mjög vel á síðasta móti og vonumst við til að sunnlendingar standi sig jafn vel og norðlendingar gerðu á síðasta móti. Koma svo!

 

Með vissu um góðar undirtektir,

Hugrún Ósk Ólafsdóttir

Mannauðsstjóri Landsmóts hestamanna

 

Flettingar í dag: 95
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 69
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 173391
Samtals gestir: 27031
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 11:48:26

Hestamannafélag

Nafn:

Snæfellingur

Afmælisdagur:

Stofndagur 2. desember 1963

Heimilisfang:

Hjá formanni hverju sinni

Staðsetning:

Snæfellsnes

Um:

.....Stjórn Snæfellings......... Herborg Sigurðardóttir, formaður Nadine Walter,ritari Ólafur Tryggvason, gjaldkeri Hlynur Þór Hjaltason Sölvi Þór Konráðsson

Kennitala:

440992-2189

Bankanúmer:

191-26-00876

Tenglar