05.09.2011 21:52

Uppskeruhátið hestamanna

Hin árlega uppskeruhátíð hestamanna verður haldin með pompi og prakt á Broadway þann 5. nóvember nk. að er fram kemur á heimasíðu Landssambands hestamannafélaga.

 
"Dagskrá hátíðarinnar verður hefðbundin, knapa verða heiðraðir, skemmtiatriði og veislustjórn í öruggum höndum einhvers heppins skemmtikrafts.
 
LH hvetur hestamenn til að taka laugardagskvöldið 5. nóvember frá og skemmta sér saman í góðra vina hópi.
 
Hátíðin verður nánar auglýst síðar."

05.09.2011 13:33

Fundarherferð

Fundaherferð landsmótsnefndar sem heldur áfram í þessari viku.

Fundatímar eru eftirfarandi:

 

·         6. sept: Hvanneyri LBhÍ kl. 20:30

·         8. sept: Hvoll Hvolsvelli kl. 20:00

·         9. sept: Fákur Reykjavík kl. 20:00

·         13. sept: Arnargerði Blönduósi kl. 20:00

30.08.2011 12:06

Fjár og stóðréttir 2011


Hér er slóð á síðuna hjá Bændasamtökum Íslands þar eru dagsetningar á fjár- og stóðréttir 2011
http://bondi.is/pages/23/newsid/1506

29.08.2011 21:10

Námskeið LBHÍ

Námskeið í frumtamningu; Lengi býr að fyrstu gerð    

Frumtamning er það kallað þegar við tökum að okkur að kenna hesti sem ekkert kann nema það sem hann hefur lært í lífsbaráttunni, af umgengni sinni við aðra hesta og menn, frá því að vera verndaður af móður sinni, upp í það að staðsetja sig af eigin rammleik í virðingarröð hestasamfélagsins. Við þurfum að hafa þetta allt í huga þegar við nálgumst slíkan hest og ætlum að byrja frumtamninguna, reyna að lesa í fortíðina sálina og eðli hans.

Í þessari námskeiðaröð verða kenndar þær aðferðir sem reynst hafa best til árangurs við fyrstu tamningu unghrossa. Samtvinnað verður aðferðum og æfingum úr reynslubanka Reynis Aðalsteinssonar og aðferðum sem byggja á vísindalegum athugunum atferlisfræðinga víða um heim. Þar á meðal reynum við að varpa ljósi á hvernig hesturinn skynjar hesturinn umhverfið og hvernig hann hugsar. Sá sem vill verða góður þjálfari verður fyrst að læra að skilja hvernig hestur hugsar.

 

Viðkomandi vinna með eigin hest og er kennt á föstudögum (kl. 13.00-19.00) og laugardögum (kl. 09.00-16.00)  í fimm skipti (með fyrirvara um breytingar). Kennslan er blanda af verklegri þjálfun, sýnikennslu og fyrirlestrum.

Leiðbeinendur: Reynir Aðalsteinsson tamningameistari og Gunnar Reynisson, starfsmenn LbhÍ.

Stund og staður: 7.-8. október, 21.-22. október, 11.-12. nóvember, 2.-3. desember og 16.-17. desember í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum (um 15 x 40 mín kennslustundir).

Verð: 89.000 kr

Skráningar:  endurmenntun@lbhi.is  eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 20.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið endurmenntun@lbhi.is

Skráningarfrestur til 30. september!

26.08.2011 22:21

Landsmótsnefnd á faraldsfæti

Á stjórnarfundi í Landssambandi hestamannafélaga þann 12. ágúst síðast liðinn, var ákveðið að landsmótsnefnd sú er stofnuð var haustdögum 2010, færi út í hestamannafélögin í landinu til að kynna skýrslu sína, niðurstöður og umfjöllunarefni og svara fyrirspurnum fundarmanna.

Nefndin, sem fjallaði  um landsmótin í nútíð og framtíð, mun hefja fundaherferðina á Akureyri föstudaginn 2. september n.k.  Daginn eftir yrðu svo fundir á Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði.

Í kjölfarið eru fyrirhugaðir samskonar kynningarfundir á Suðurlandi, í Reykjavík, á Vesturlandi og Norðvesturlandi vikuna eftir. Nánari tímasetningar og dagsetningar verða auglýstar eftir helgi.

Hér má skoða skýrslu nefndarinnar í heild sinni. Stjórn LH hvetur alla hestamenn til að kynna sér innihald skýrslunnar og koma af stað málefnalegum umræðum á fundunum sem næst þeim verða haldnir.

Í nefndinni sitja eftirtaldir einstaklingar:

Sveinbjörn Sveinbjörnsson formaður, skipaður af LH

Birgir Leó Ólafsson, skipaður af LH

Stefán Haraldsson, skipaður af LH

Sigrún Ólafsdóttir, skipuð af BÍ

Kristinn Guðnason, skipaður af BÍ

 

Auk fulltrúa nefndarinnar mun Haraldur Þórarinsson formaður LH koma á fundina. 

22.08.2011 17:13

Vesturlandssýning 2012

 Vesturlandssýning í Faxaborg, Borgarnesi, laugardinn 24. mars 2012

Vegna þess hve vel gekk að endurvekja Vesturlandssýningu í apríl síðastliðnum hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn og stefnt er að því halda Vesturlandssýningu laugardaginn 24. mars 2012 í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi. Svo það er um að gera að taka daginn frá.

Ef áhugi er að vera með hross á sýningunni þá komið því endilega á framfæri.

Fyrir hönd Selás ehf.,
Eygló Hulda
eyglo.krossi@gmail.com

22.08.2011 17:06

Stíur til leigu við reiðhöllina Faxaborg

Til leigu 10-12 stíur (eins hesta) veturinn 2011-2011,  í hesthúsinu við reiðhöllina Faxaborg, Borgarnesi.    Stíurnar eru lausar strax en leigutími er að lágmarki fimm mánuðir.

Leiguverð er 18.825 með vsk fyrir stíuna á mánuði (hey og spónn ekki innifalið).  Áhugasamir hafi samband við mig í síðasta lagi 30/9 nk í gsm 860 2181 eða á netfangið lit@simnet.is

01.08.2011 19:48

Reiðnámskeið

Reiðnámskeið í Söðulsholti

Mándaginn og þriðjudaginn 8-9 ágúst ætlum við að hafa reiðnámskeið fyrir börn /unglinga í Söðulsholti. Kennari verður Randy Holaker frá Skáney.

Námskeiðið kostar 10.000, hver hópur verður tekin 2 x 45 á dag.

Skráning og nánari upplýsingar 8995625 / 8610175

Síðasti skráningardagur er á föstudaginn 5. ágúst.

12.07.2011 14:06

Hrossarækt á Naustum

Hér eru myndir úr ræktuninni á Naustum,

IS2007237335 Stássa frá Naustum  
sem var sýnd á landsmóti í 4. vetra flokki.  
Hún er með 8.02 í aðaleinkunn, sem skiptast í 8.05 í byggingu og 8 slétta fyrir hæfileika.
Stássa er undan Baug frá Viðinesi og Snörp frá Naustum.
Eigandi á Stássu er Illugi Guðmar Pálsson
 

 




IS1996237332 Snörp frá Naustum með hestfolald fætt í ár undan Geisla frá Sælukoti. 
Snörp er fyrstu verðlauna meri með 8.17 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8.04. 
 Snörp er undan Viðar frá Viðvík og Stássu frá Naustum.  
Geisli frá Sælukoti vann eins eftirminnilegt er A flokk á landsmóti 2 sinnum.
Snörp á 2 dæmd afkvæmi.  Gróða frá Naustum sem fékk 8.06 fyrir hæfileika og aðaleinkunn 7,93 
og svo Stássu frá Naustum með 8,02 í aðaleinkunn. 
Eigandi af Snörp er Margrét Erla Hallsdóttir.

28.06.2011 12:57

Goði frá Bjarnarhöfn

 Goði frá Bjarnarhöfn fæddur 20 júní undan Gyðju frá Bjarnarhöfn og Spuna frá Vesturkoti. 
Eigandi Brynjar Hildibrandsson

23.06.2011 20:02

Miðarnir á Landsmót klárir

Nú er hægt að sækja miðana á N1 stöðvarnar.
Þeir fjölmörgu sem keyptu sér miða á netinur geta nú sótt armböndin sín á þá N1 bensínstöð sem tiltekin er á kvittuninni fyrir miðakaupunum. Stjórn Landsmóts ehf. vill vekja athygli á því að koma þarf með kvittunina með strikamerkinu til að fá armböndin afhent.

22.06.2011 17:14

Ljósmyndari á landsmóti

Áttu hross á Landsmóti, vildu láta taka af því ljósmyndir? 

Verð á staðnum með myndavélina að vopni vertu í bandi við mig ef þig
langa rað láta taka af hrossinu þínu ljósmyndir 

Kveðja Kolla Gr 894-4966 eða kollagr@simnet.is


21.06.2011 13:45

Peysurnar á leiðinni

Peysurnar eru væntanlegar vestur í kvöld
Hægt verður að nálgast þær í Hrísdal á morgun.
Einnig munum við reyna að koma peysunum í Grundarfjörð og Stykkishólm, auglýsum það nánar síðar.
Flettingar í dag: 164
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 2152
Gestir í gær: 245
Samtals flettingar: 195993
Samtals gestir: 29766
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 13:39:10

Hestamannafélag

Nafn:

Snæfellingur

Afmælisdagur:

Stofndagur 2. desember 1963

Heimilisfang:

Hjá formanni hverju sinni

Staðsetning:

Snæfellsnes

Um:

.....Stjórn Snæfellings......... Herborg Sigurðardóttir, formaður Nadine Walter,ritari Ólafur Tryggvason, gjaldkeri Hlynur Þór Hjaltason Sölvi Þór Konráðsson

Kennitala:

440992-2189

Bankanúmer:

191-26-00876

Tenglar