03.12.2010 21:29
Uppskeruhátið
Þetta er örugglega eitthvað sem er komið til að vera.
Hrefna og Gísli á Vegamótum reiddu fram veglegar veitingar.
Happadrættið tókst vel og fóru margir heim með góða vinninga.
Aðalvinninginn folatollur undir Dyn, fékk Hrefna á Vegamótum.
Ekki vantaði skemmtiatriðin.
Jökull og Diddi tóku lagið eins og þeim er einum lagið, eins tók litli frændi Didda lagið fyrir okkur, bráðefnilegur drengur þar á ferð. (afsakið, man bara ekki hvað hann heitir)
Lárus, Erna Rut og Hólmgeir komu og tóku nokkur lög.
Þökkum við þessum aðilum innilega fyrir góða skemmtun.
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu.
Efnilegasti knapinn Borghildur Gunnarsdóttir
Knapi ársins Siguroddur Pétursson
Svo voru veitt verðlaun fyrir ræktunarstarf
þetta er þeir stóðhestar sem fengu verðlaun sem hæstu dæmdu stóðhestarnir í hverjum árgangi hjá Snæfelling
4 vetra Magni frá Hellnafellni 7.95 eigandi Kolbrún Grétarsdóttir
5 vetra Sporður frá Bergi 8.24 eigandi Jón Bjarni Þorvarðarson
6 vetra Uggi frá Bergi 8.47 eigandi Jón Bjarni Þorvarðarson
Hér koma svo hryssurnar
4 vetra Skriða frá Bergi 8.00 eigandi Jón Bjarni Þorvarðarson
5 vetra Brá frá Bergi 7.98 eigandi Anna Dóra Markúsdóttir
6 vetra Brán frá Ytri-Hofdölum 8.14 eigandi Anna Dóra Markúsdóttir
7 vetra Hera frá Stakkhamri 8.29 eigandi Lárus Ástmar Hannesson
Glæsilegur árangur hjá þeim og þess má geta að þau eru öll sammæðra Uggi, Sporður og Skriða.
Þotusköldurinn
Gunnar Kristjánsson fyrir störf að félagsmálum
Ræktunarbú ársins
Anna Dóra og Jón Bjarni
Bergi
Óskum öllum þeim sem fengu viðukenningar innilega til hamingju með góðan árangur á árinu.
Hér eru þeir Lárus og Hólmgeir
Erna Rut og Hólmgeir
Þökkum fyrir ánægjulegt kvöld og hlökkum til að ári.
Flettingar í dag: 47
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 807
Gestir í gær: 178
Samtals flettingar: 297501
Samtals gestir: 43173
Tölur uppfærðar: 8.1.2025 07:33:26