Færslur: 2024 Mars

28.03.2024 21:19

Aðalfundur

 

 

Hestamannafélagið Snæfellingur

 

 

 

Aðalfundur Hestamannafélagsins Snæfellings
sunnudaginn 7.  apríl   kl. 20
í félgasaðstöðunni í reiðhöllinni í Ólafsvík.

 

1. Fundarsetning og kjör starfsmanna fundarins.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Formaður leggur fram skýrslu stjórnar.
4. Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins.
5. Skýrslur nefnda.
6. Lagðar fram tillögur, umræður og afgreiðsla.
7. Kosning , stjórnar, skoðunarmanna og fulltrúa á þing H.S.H. og  Hrossaræktarsambands Vesturlands.
8. Önnur mál.

      Íþróttamót

      Gæðingamót

 

Formaður og gjaldkeri gefa ekki kost á sér í áframhaldandi setu í stjórn og kjósa þarf því inn nýtt fólk í stjórn. Svo nú er tækifæri fyrir áhugasama að koma inní stjórn til að taka við keflinu.

 

 

Stjórn leggur fram lagabreytingu á 5 grein í lögum félagsins í samræmi við breytingu á lögum hjá HSH sem verða lögð fyrir þingið 11. Apríl. Breytingin er sú að boða skal til aðalfundar fyrir 15. mars í staðinn fyrir 20. apríl.

5. Grein

 

           Aðalfundur skal haldinn ár hvert eigi síðar en 15.mars og skal boðað til hans með  minnst 7 daga fyrirvara.  Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála.  Ef um lagabreytingar er að ræða skal tilkynna það í fundarboði og til að þær nái fram að ganga þarf 2/3greiddra atkvæða fundarmanna.  Sé um lagabreytingar að ræða ber að boða fund með minnst 7 daga fyrirvara.  Aukafundi boðar stjórn eftir þörfum.

 

Breyting á lögum hjá HSH

8. GREIN

Aðildarfélög HSH skulu halda aðalfund eigi síðar en 15.mars ár hvert. Senda skal ársskýrslu og samþykkta ársreikninga til stjórnar HSH eigi síðar en 15.mars ár hvert. Aðildarfélögskulu notast við ársskýrslu-og ársreikninga skapalón sem HSH leggur til.

 

Með bestu kveðju stjórnin.

  • 1
Flettingar í dag: 259
Gestir í dag: 71
Flettingar í gær: 234
Gestir í gær: 62
Samtals flettingar: 182728
Samtals gestir: 27949
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 14:53:49

Hestamannafélag

Nafn:

Snæfellingur

Afmælisdagur:

Stofndagur 2. desember 1963

Heimilisfang:

Hjá formanni hverju sinni

Staðsetning:

Snæfellsnes

Um:

.....Stjórn Snæfellings......... Herborg Sigurðardóttir, formaður Nadine Walter,ritari Ólafur Tryggvason, gjaldkeri Hlynur Þór Hjaltason Sölvi Þór Konráðsson

Kennitala:

440992-2189

Bankanúmer:

191-26-00876

Tenglar