05.02.2011 22:17
Umferðareglur í Snæfellingshöllinni
UMFERÐARREGLUR
1. Látið vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inn á
miðjum velli en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
2. Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari
gangtegund á ytri sporaslóð. Þeir sem ríða hægari gangtegund skulu ávallt víkja
fyrir þeim er hraðar fara.
3. Tvær hestlengdir skulu ávallt milli hesta. Ekki má ríða hlið við hlið eða
hafa tvo hesta til reiðar.
4. Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami
hraði. Undantekning frá því er ef annar knapi ríður hraðar skal honum
eftirlátin ytri sporaslóð.
5. Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir
þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð
6. Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf er best að gera
slíkt inni á miðjum velli nema um annað sé samkomulag þeirra í milli er stunda
æfingar á vellinum hverju sinni.
7. Hringtaumsvinna fer engan veginn saman við þjálfun í reið og skal víkja nema
um annað sé sérstaklega samið.
8. Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.
9. Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.
10. Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda
hesta þar.
11. Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.
12. Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð