08.04.2011 21:59
N1 er orðinn
einn af stærstu styrktaraðilum Landsmóts og Landssambands hestamannafélaga. Öllum
hestamönnum stendur nú til boða að fá N1 kortið með sérkjörum og um leið geta
viðkomandi aðilar valið sitt hestamannafélag til þess að styrkja. Hálf króna af
hverjum seldum lítra rennur þá sem fjáröflun til viðkomandi félags. Þeir aðilar
sem nú þegar hafa N1 kort eru vinsamlega beðnir að senda tölvupóst til LH á hm@landsmot.is með ósk um hvaða
hestamannafélag það vill að kortið sitt styrki og mun sú ósk í engu breyta um kjör viðkomandi
hjá N1. LH mun síðan koma þeim skilaboðum áleiðis til N1.
Það er því hagur
hestamannafélaganna að þeirra félagar noti kortin frá N1 og er þetta mjög góð
fjáröflun fyrir félög innan Landssambands hestamannafélaga.
Einnig má
geta þess að N1 kortið getur nýst sem enn frekari fjáröflunar fyrir
æskulýðsnefndirnar í félögunum eða félögin sjálf. Hvert félag getur skráð einstaklinga innan
hestamannafélagsins fyrir N1 korti og af hverju skráðu korti fær það æskulýðsfélag
eða félag til sín 800 kr. Hérna er góð
leið til þess að styrkja æskulýðs og barnastarf hver félags fyrir sig og/eða
hestamannafélagið sjálft.
Endilega
nýtið þetta góða tækifæri sem getur verið góð tekjuöflun næstu árin og þess má
geta að hver N1 korthafi fær 1000 króna afslátt af hverjum miða inn á Landsmót
hestamanna 2011 og 2012.
Allar
upplýsingar veitir Hólmfríður hm@landsmot.is
Eða
skrifstofa LH 514-4030