16.04.2011 22:53
Reiðmaðurinn
Reiðmaðurinn
Námskeiðsröð fyrir áhugafólk um reiðmennsku
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opna nú fyrir nýja námshópa í áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Námið sem kallastReiðmaðurinn má taka með vinnu og er hugsað fyrir áhugafólk eldra en 16 ára sem hefur áhuga á að bæta sína reiðmennsku og þekkingu á hrossarækt. Verkleg kennsla fer fram ca. eina helgi í mánuði frá september og fram í apríl. Bóklegt nám er tekið samhlið í gegnum námsvef skólans.
Námið er byggt upp sem röð af helgarnámskeiðum þar sem nemendur koma einu sinni í mánuði með sinn hest og taka fyrir ákveðinn hluta af reiðmennskunni. Einnig er farið yfir bóklegt efni í fyrirlestrum og með fjarnámi. Hér er því um sambland af staðarnámi og fjarnámi að ræða þar sem ætlast er til að nemendur undirbúi sig bæði í verklegum og bóklegum atriðum heima.
Námið er metið til samtals 33 ECVET-eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið er unnið í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda.
Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ er Ásdís Helga Bjarnadóttir, að faglegri uppbyggingu námsins koma Reynir Aðalsteinsson og Þorvaldur Kristjánsson.
Nánari lýsing á náminu
Almennar kröfur
Reiðmaðurinn er nú kenndur:
...á Iðavöllum á Fljótsdalshéraði,
...í Reiðhöllinni á Akureyri,
...í Borgarfirði, Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum og í Faxaborg við Borgarnes
...á Flúðum og í Rangárhöllinni við Hellu
...á Hestamiðstöðinni Dal og Sörlastöðum í Hafnarfirði
Þeir sem hafa áhuga á að sækja um nám í Reiðmanninum eru hvattir til að fylla út umsóknareyðublaðið hér fyrir neðan og senda það með tölvupósti áendurmenntun@lbhi.is Ahugið að um er að ræða tímabilið 2011-2013.
Ef áhugahópur er til staðar innan ákveðins hestamannafélags kemur vel til greina að hefja næsta skólaár á viðkomandi stað, uppfylli staðurinn þær kröfur sem settar eru vegna kennslunnar og næg þátttaka fyrir hendi. Hafið samband við Endurmenntun LbhÍ og málið verður skoðað.
Umsóknareyðublað