08.05.2011 15:03
Ráðstefna
Alþjóðlega NJF-ráðstefnan "Housing and
management of horses in Nordic and Baltic climate" verður haldin á Hótel
Loftleiðum dagana 6. og 7. júní nk.
Markmið
ráðstefnunnar er að draga saman nýjustu rannsóknarniðurstöður og leiðbeiningar
varðandi meðferð hrossa, bæði innan sem utanhúss, með sérstaka áherslu á
nærumhverfi bæði hrossa og manna.
Fagsvið ráðstefnunnar verða fjölbreytt og spanna vítt svið eins og sjá má við
lestur dagskrár hennar:
http://www.njf.nu/site/seminarRedirect.asp?p=1004&intSeminarID=437&strSemInfoType=pro
Á ráðstefnunni munu margir þekktir sérfræðingar í húsvist og aðbúnaði hrossa halda erindi. Aðalfyrirlesarar eru: dr. Eileen Fabian Wheeler (Háskólanum í Pennsylvaníu, Bandaríkjunum - margir þekkja hana sem höfund bóka um hönnun hesthúsa), dr. Eva Søndergaard (Agro Food Park, Danmörku), dr. Knut Bøe (Náttúruvísindaháskólanum í Noregi) og dr. Michael Ventorp (Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð). Auk þess eru fjölmargir aðrir fyrirlesarar, m.a. helstu sérfræðingar Íslands á sviði atferlis og aðbúnaðar hrossa.
Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um hross og hestamennsku. Skráðu þig
á: www.njf.nu eða með því að
senda tölvupóst á ráðstefnustjóra hennar (Snorra Sigurðsson, Landbúnaðarháskóla
Íslands): snorri@lbhi.is
Athygli er vakin á því að íslenskir þátttakendur geta fengið 50%
afslátt af ráðstefnugjaldi (borga þá 150 Evrur) óski þeir eftir því. Þetta
kemur reyndar ekki fram á heimasíðunni, en stjórn ráðstefnunnar tók þessa
ákvörðun og mun ráðstefnustjóri hafa samband við alla íslenska þátttakendur og
bjóða þessi sérkjör. Viðkomandi skráir sig því eins og um fullt gjald væri að
ræða en fær svo afslátt.