20.04.2013 15:26
Íþróttamót 2013
Opið íþróttamót Snæfellings
í Grundarfirði sunndudaginn 28. apríl kl. 10
-Barnaflokkur -
V2( fjórgangur 2 eða fleiri inn á vellinum í einu),
T3 (tölt 2 eða fleiri inn á vellinum í einu).
-Unglingafl. -
V2 (fjórgangur 2 eða fleiri inn á vellinum í einu),
T3 (tölt 2 eða fleiri inn á vellinum í einu).
-Ungmennafl. -
V2 (fjórgangur 2 eða fleiri inn á vellinum í einu),
T3 (tölt 2 eða fleiri inn á vellinum í einu).
-2.flokkur. -
V2 (fjórgangur 2 eða fleiri inn á vellinum í einu),
T7 (tölt 2 eða fleiri inn á vellinum í einu, Hægt tölt snúið við frjáls ferð á tölti).
Þessi flokkur er ætlaður þeim sem eru lítið keppnisvanir eða eru að hefja keppnisferilinn.
-Opinn flokkur -
V1,(fjórgangur)
F1,(fimmgangur)
T1,(tölt) einn inn á vellinum í einu í öllum greinum í opna flokknum.
Gæðingaskeið
100 m skeið
Pollaflokkur 9 ára og yngri verður í hádegishléinu og allir fá viðurkenningu
skráning á staðnum í Pollaflokkinn
Athugið breyttar reglur:
Athygli keppenda er vakin á því að nú má ekki lengur skipta um hest (koma með annan hest en þann sem skráður var) þó svo að um íþróttakeppni sé að ræða. Einnig á því að í keppnisgreininni Tölt T3 eru úrslit riðin eins og forkeppni, þ.e. hvert atriði sýnt aðeins upp á aðra höndina en ekki upp á báðar hendur eins og í T1. Lámarkseinkunn var feld niður og því mega allir keppa í (V1, F1, T1,). Einnig minnum við á að nú þarf barn að verða að lágmarki 10 ára á árinu til að mega keppa.
Skráningar:
Farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com og smellið á SKRÁNINGAKERFI vinstra megin á síðunni (fyrir neðan Login hnappinn, athugið að ekki á að logga sig inn á SportFeng). Á forsíðu skráningakerfisins er smellt á Skráning í valmynd og síðan á flipann Mót. Áframhaldið rekur sig sjálft, munið bara að skrá einnig upp á hvora hönd þið þið ætlið að ríða og að fara í Vörukörfu að skráningu lokinni og að klára þar öll skref í ferlinu.
Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í skráningarferlin. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist! Gjaldið er kr. 2000 á skráningu. Síðasti dagur skráninga er fimmtudagur 25. apríl á miðnætti og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda. Ekki verður hægt að skrá eftir að skráningafrestur rennur út.
Skráningakerfið - leiðbeiningar
Það er búið að útbúa kennslumyndband þar sem farið er í gegnum skráningu á mót með skráningakerfi okkar hestamanna. Myndbandið er hér.
Ef einhver lendir í vandræðum með þetta er sjálfsagt að hafa samband við:
Sigurodd í síma 8979392
Sigurodd í síma 8979392
Kveðja Mótanefnd Snæfellings
Skrifað af Siggu
Flettingar í dag: 263
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 807
Gestir í gær: 178
Samtals flettingar: 297716
Samtals gestir: 43197
Tölur uppfærðar: 8.1.2025 07:54:28