14.11.2016 10:12
Árshátíð hestamanna.
Árshátíð hestamanna á Vesturlandi verður haldin þann 19. nóvember 2016
á hinum margrómaða sælustað, Hótel Glym í Hvalfirði
Þessi virðulega samkoma vestlenskra hestamanna byrjar kl 19:30 með fordrykk að hætti Glyms. Borðhald hefst kl. 20:00. Hótel Glymur býður upp á sérstakt árshátíðartilboð á borðvíni og á barnum verður tilboð á bjór og sérstökum hestamannadrukk. Skemmtidagskrá með Haraldi Benediktssyni bónda og þingmanni frá Vestri-Reyni sem sérlegum ræðumanni kvöldsins og veislustjórn í höndum Dreyrafélaga. Stuðbandið Skaramú með Dreyrasnótinni söngelsku, Ástu Marý Stefánsdóttur, mun leika fyrir dansi.
Boðið verður upp á: - Sjávarréttasúpa með heimabökuðu brauði - Fennilgrafið foladafille með sólþurrkuðum tómötum og fetaosti - Lambafille með rótargrænmeti, kartöflum og bláberjasósu - Súkkulaði kaka með heimagerðum ís
Verð: Matur og dansiball 9200 kr. á mann. Matur, dansleikur, morgunverðar hlaðborð og gisting í einsmanns herbergi. 20.900 kr á mann og í 2ja manna herbergi 16.900 kr á mann.
Nokkur atriði sem gott er að vita um: -Það eru yndislegir heitir pottar við hótelið sem gestir mega nota frá morgni til miðnættis. -Við hestamenn höfum til afnota allt hótelið og litlu húsin á svæði Hótels Glyms. :-) - Hótelherbergin og húsin eru tilbúin kl 15 á laugardegi og brottför úr herbergjum er kl 12 á hádegi daginn eftir. Morgunverðarhlaðborð er frá kl 9-11. -Gestir hótelsins mega ekki vera með eigið áfengi í almennum rýmum hótelsins.
Pantanir berist á netfangið dreyri@gmail.com
Ef þið hafið ekki komið á Hótel Glym þá er hægt að skoða myndir og annað á www.hotelglymur.is.
Það eru ALLIR hestunnendur velkomnir á árshátíðina.
Með gleðikveðju Hestamannafélagið Dreyri.