17.04.2017 17:11
Íþróttamót Glaðs
Opið íþróttamót Glaðs 22. apríl
Hestaíþróttamót Glaðs fer fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 22. apríl og hefst keppni stundvíslega klukkan 10:00. Mótið er opið félögum í hestamannafélögum í LH.
Dagskrá:
Knapafundur í reiðhöllinni kl. 09:30
Forkeppni hefst kl. 10:00:
Fjórgangur: opinn flokkur V2, barnaflokkur V5, unglingaflokkur V2 og ungmennaflokkur V2
Fimmgangur F2: opinn flokkur
Tölt T7: barnaflokkur
Tölt T3: unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur og 1. flokkur
Úrslit:
Fjórgangur: opinn flokkur, barnaflokkur, unglingaflokkur og ungmennaflokkur
Fimmgangur: opinn flokkur
Pollaflokkur, frjáls aðferð
Tölt: barnaflokkur, unglingafl., ungmennafl. og opinn flokkur
100 m skeið (flugskeið)
Takið eftir:
· Í barnaflokki verður keppt í V5 (frjáls ferð á tölti, brokk, fet og stökk) og í T7 (hægt tölt og tölt á frjálsri ferð). Í skráningarkerfinu heitir fjórgangurinn samt V2 í barnaflokki eins og í hinum flokkunum.
· Ef þátttaka verður næg verður opnum flokki (þ.e. fullorðnum) í tölti nú skipt upp í 1. og 2. flokk. Keppendur raða sér sjálfir í flokk eftir getu og keppnisreynslu.
Skráningar:
Skráning er í Skráningakerfi SportFengs eins og venjulega. Opið er fyrir skráningar til kl. 20:00 fimmtudaginn 20. apríl. Sama gildir um greiðslu skráningagjalda en gjaldið er 1.500 krónur í barna-, unglinga- og ungmennaflokk en 2.500 kr. í fullorðinsflokka. Pollar eru skráðir á mótsstað eða með tölvupósti til Svölu eða Þórðar. Það er ekkert skráningagjald í pollaflokkinn. Aðstoð við skráningar veita:
Svala í 861 4466 eða budardalur@simnet.is
Þórður í 893 1125 eða thoing@centrum.is
Mótanefnd Glaðs