Blogghistorik: 2012 N/A Blog|Month_2
27.02.2012 22:51
KB Mótaröðin
Fanney O. Gunnarsdóttir
og Sprettur frá Brimilsvöllum sem kastar mæðinni eftir góða töltkeppni.
KB-Mótaröð Tölt
Laugardaginn 26. febrúar s.l fór fram töltmót í KB-Mótaröðinni 2012 í Reiðhöllinni í Borgarnesi. Fanney O. Gunnarsdóttir sem keppti fyrir hönd Hestamannafélagsins Snæfellingur vann barnaflokkin á stóðhestinum Sprett frá Brimilsvöllum með einkunn 6,0.
En fleiri félagsmenn gerðu það gott á þessu móti: Kolbrún Grétarsdóttir varð í öðru sæti í meistaraflokknum á Stapa frá Feti með 7,42 í einkunn og Guðný Margrét Siguroddsdóttir varð í 5. sæti í unglingaflokknum á Vordís frá Hrísdal með einkunn 5,0.
V.O.
27.02.2012 21:14
Reiðnámskeið
Reiðnámskeið 2012 tímatafla |
kl 5 |
Brynja Gná Heiðarsdóttir |
Fjóla Rún Sölvadóttir |
kl 6 |
Brynjar Friðriksson |
Harpa Lilja Ólafsdóttir |
Fanney Gunnars |
Lena Örvarsdóttir |
Selma Hjartardóttir |
kl 7 |
Guðrún Ö Ólafsdóttir |
Friðrik Tryggva |
Herdís Gróa Tómasdóttir |
Veronika Osterhammer |
Kristín Halla Haraldsdóttir |
kl 8 |
Bjarni Jónasson |
Helga Magnúsdóttir |
Ólafía Hjálmarsdóttir |
Ingibjörg Sigurðardóttir |
Valgeir Magnússon |
15.02.2012 14:30
Fundur í Hrísdal
Fundur með hestamönnum á Vesturlandi
Það var líf og fjör á fundi stjórnar Landssambands hestamannafélaga í hesthúsinu í Hrísdal á Snæfellsnesi á laugardaginn 11. febrúar. Stjórn LH hafði verið á tveggja daga stjórnarfundi á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi, þar sem unnið var í ýmsum málefnum samtakanna og venju samkvæmt var síðan fundað með hestamönnum á svæðinu í tengslum við stjórnarfundinn. Haraldur Þórarinsson formaður LH hélt framsögu og fór yfir þau mál sem helst brenna á hestamönnum í dag, auk þess að segja frá áherslum stjórnarinnar í störfum sínum á árinu. Í framhaldi sköpuðust fjörugar umræður um reiðvegamál, en Vestlendingar telja sig hafa farið halloka í úthlutun reiðvegafjár undanfarin ár. Einnig var rætt um, keppnismál, fasteignagjöld af hesthúsum og fleira.
Í máli Haraldar kom fram að stjórn telur það mikið réttlætismál að hesthús verði í A-flokki við álagningu fasteignagjalda, hvar sem þau standa á landinu. Ef hestaíþrótt eigi að njóta sannmælis í þéttbýlinu og haldi áfram að blómstra á landsvísu, verði að tryggja að auknir skattar verði ekki lagðir á hestamenn. Hefur stjórn LH unnið markvisst að málinu og fól efnahags- og skattanefnd Alþingis innanríkisráðuneytinu að vinna frumvarp til breytinga á lögunum.
Haraldur gerði grein fyrir því að stjórnin hefði fallist á tillögu samgöngunefndar LH um breytingar á úthlutun reiðvegafjár. Breytingin felur í sér að tiltekin fjárhæð verður tekin til hliðar af óskiptu reiðvegafé og notuð til úthlutunar til fjölfarinna ferðamannastaða og reiðleiða, svo sem í leiðina um Löngufjörur og sambærilegar leiðir. Er þessi breyting til komin vegna athugasemda formanns Snæfellings til stjórnar LH og reiðveganefndar um hversu óréttlátt sé að minni félög á landsbyggðinni verji lunganu af sinni úthlutun til reiðvega í að halda við reiðleiðum fyrir ferðamenn, bæði íslenska og útlenda.
Einnig gerði Haraldur að umtalsefni þann gífurlega kostnað sem fellur á hestamannafélög á landsbyggðinni vegna ferðakostnaðar dómara. Eru til skoðunar leiðir til að bregðast við þessu og hefur stjórn LH skipað starfshóp sem á að koma með hugmyndir að lausn vandans, t.d. með stofnun jöfnunarsjóðs sem greitt yrði í af öllum skráningum og sjóðurinn notaður til að greiða dómurum vegna ferðalaga í stað þess fyrirkomulags sem nú tíðkast.
Að lokum gerði Haraldur velferðarmál að umtalsefni og sagði frá nýskipaðri velferðarnefnd LH og helstu hagsmunaaðila í hestamennsku, en henni er ætlað að vinna út frá þeim rannsóknum og niðurstöðum sem til eru og lúta að velferð íslenska hestsins, bæði í keppni, almennri notkun og við hestahald. Er ætlunin að svara þeirri gagnrýni sem upp hefur komið bæði innanlands og utan um velferð hesta á faglegan, uppbyggilegan og málefnalegan hátt.
Eftir framsöguna og svör stjórnarmanna úr sal tóku menn upp léttara hjal, gerðu sér veitingar að góðu og skoðuðu efnileg ung hross og folöld í hesthúsi Gunnars Sturlusonar í Hrísdal.
14.02.2012 16:23
Æskulýðshittingur
Frá Æskulýðsnefnd
Sunnudaginn 12.02. 2012 hittust tólf framtíðar hestamenn í Fákaseli í Grundarfirði ásamt foreldrum.
Tilefnið var að búa til hestanammi,hitta aðra krakka, og mynda tengsl.
Krakkarnir voru mjög dugleg að búa til nammið en það var töluvert drullumall, alt hafðist það samt á endanum og allir fóru með poka heim með sínu nammi. Sumum fannst nammið það gott að ekki var víst að hestarnir fengju nokkuð.á meðan bakað var tóku krakkarni í spil og svo fengum við pulsur.
Uppskrift
1bolli haframjöl
1 bolli rúgmjöl
Ein stórgulrót rifin ca einn bolli
3 matskeiðar síróp
½ bolli graskersfræ
Alt sett í ílát, hnoðað í höndunum og búnar til kúlur,þær eru svo bakaðar í 20 mín á 180 gr í ofni.
Næst hittumst við í Reiðhöllinni 15 apríl,þá verður þrautabraut og þeir sem geta fara í reiðtúr á eftir.
Takk krakkar fyrir flottan dag.
Með kveðju æskulýðsnefnd.
14.02.2012 10:58
Reiðnámskeið
Reiðnámskeið
verður haldið í reiðhöllinni Grundarfirði.
Byrjað verður í febrúar og stendur fram í apríl. Kennt er á Þriðjudögum og einu sinni föstudag og laugardag.
Kennari
verður Guðmundur M Skúlason úr Hallkelsstaðarhlíð.
Boðið er
upp á einkatíma fyrir einn til tvo á kr 5500 tíminn og almennt reiðnámskeið
Verð fyrir almennanámskeiðið er 17 þúsund.
Árskorthafar, börn og unglingar greiða 15 þúsund
Skráning
hjá Óla Tryggva olafur@fsn.is
síma 8918401
eða Guðmundur M. Skúlason mummi@hallkelsstadahlid.is
Fyrstir panta
fyrstir fá.
10.02.2012 07:09
Folaldasýning í Söðulsholti
Laugardaginn 18.Febrúar kl. 13.00 ætlum við í Söðulsholti í samstarfi við Snæfelling að vera með folaldasýningu í Söðulsholti.. Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 8993314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is.
Sýningin er opin öllum. Gefa þarf upp nafn,lit, fæðingarstað,föður, móðir,
ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum. Að þessu sinni ætlum
við að biðja fólk að reyna stilla fjöldanum í hóf og að hver ræktandi sé ekki
að koma með fleiri en 3-4 folöld. Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027
og kt 540999-2019. Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 16.Febrúar.
Aðgangseyrir er 1000 kr og innifalið í því eru kaffiveitingar, frítt fyrir
12 ára og yngri og auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta;)
08.02.2012 23:35
Hestadagar í Reykjavík
Hér að neðan er linkur sem er
kynning á hestadögum í Reykjavík
Slóð inn á heimasíður hestadaga er
http://www.icelandichorsefestival.is/is
og þar má sjá dagskrána
Kynningarmyndband hestadaga:
08.02.2012 13:16
Æskulýðsnefnd auglýsir
Sunnudaginn
12 Febrúar kl. 14 hittumst við í Fákaseli í Grundarfirði.
Þar
ætlum við að búa saman til Hestanammi, spila, horfa á mynd og að lokum verður pulsupartí.
Foreldrar
eru hvattir til að koma með börn sín og eiga með okkur ánægjulega stund.þarna
er góður vettvangur til að spjalla um hvað fleira við getum gert.
Æskulýðsnefnd
þarf öfluga foreldra til liðs við sig til að efla starfið fyrir börnin okkar.
Til að vita hvað við þurfum kaupa mikið í hestanammið þurfum við að vita ca hvað margir koma,sendið okkur póst eða hringið olafur@fsn.is simi:8918401 asdissig67@gmail.com 8458828
07.02.2012 11:19
LH boðar til fundar
Næstkomandi laugardag boðar stjórn LH til fundar með hestamönnum á Vesturlandi.
Verður fundurinn haldinn í hesthúsinu í Hrísdal á Snæfellsnesi og byrjar kl. 16 með ávarpi formanns LH Haraldar Þórarinssonar.
Gefst mönnum kostur á að ræða málefni sem brenna á hestamönnum við stjórn LH, auk þess að hittast kíkja á hrossin og spjalla saman.
Verða
léttar veitingar í boði. Ágætt væri að vita um hugsanlegan fjölda.
Megið
senda tölvupóst á hrisdalur@hrisdalur.is
Svo skemmtilega vill til að hestamannafélagið Skuggi verður á ferðinni um Snæfellsnesið og hafði verið gert ráð fyrir heimsókn í Hrísdal. Var ákveðið að slá heimsókninni og fundinum saman því má búast við góðri mætingu Skuggamanna og væri gaman að sjá sem flesta.
Kveðja
Stjórnin
- 1