Blogghistorik: 2017 Nästa sida
27.04.2017 14:35
Frestun á íþróttamótinu
Því miður verðum við að fresta íþróttamótinu um óákveðinn tíma vegna dræmrar þátttöku.
Nánari upplýsingar verða auglýstar síðar.
Þeir sem skráðu sig senda bankauppl. á olafur@fsn.is til þess að fá endurgreitt
Kveðja Stjórnin
22.04.2017 10:51
Námskeið
Stjórnin hefur ákveðið að halda námskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni þeim að kostnaðarlausu sem ætla að taka þátt í gæðingamótinu hjá okkur sem er þann 3. júní og er um leið úrtaka fyrir Fjórðungsmótið. Sigrún Ólafsdóttir ætlar að leiðbeina á námskeiðinu fyrir okkur og það er stefnan á byrja seinni partinn á mánudaginn þann 24 apríl, stefna er á 2 til 3 skipti. Þetta yrði allt í Stykkishólmi því gæðingamótið verður þar. Fínt væri að heyra frá þeim sem hefðu áhuga á svona námskeiði og við svo planað áframhaldið
20.04.2017 13:21
Íþróttamót
Opið íþróttamót Snæfellings
í Grundarfirði
laugardaginn 29. apríl
-Barnaflokkur -
V2, fjórgangur,
T7, Tölt
-Unglingafl. -
V2, fjórgangur
T3, Tölt
-Ungmennafl. -
V2, fjórgangur
T3, Tölt
-2.flokkur. -
Þrígangur (tölt, fet, brokk, 2 eða fleiri inn á vellinum í einu),
T3 Tölt
-Opinn flokkur -
V2, fjórgangur
F2, fimmgangur
T3, Tölt
Gæðingaskeið
Gæðingaskeið er háð þátttöku og þarf lágmark fimm skráningar.
100 m skeið
Pollaflokkur Hér mega allir taka þátt, verður í hádegishléinu og allir fá viðurkenningu
skráning á staðnum í Pollaflokkinn
Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í skráningarferlin. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist! Gjaldið er kr. 3000 á skráningu fyrir fullorðinn og 2000 kr á yngri flokkana. Sendið kvittun á olafur@fsn.is Síðasti dagur skráninga er miðvikudaginn 26. apríl klukkan 22 og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda. Ekki verður hægt að skrá eftir að skráningafrestur rennur út.
17.04.2017 17:11
Íþróttamót Glaðs
Opið íþróttamót Glaðs 22. apríl
Hestaíþróttamót Glaðs fer fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 22. apríl og hefst keppni stundvíslega klukkan 10:00. Mótið er opið félögum í hestamannafélögum í LH.
Dagskrá:
Knapafundur í reiðhöllinni kl. 09:30
Forkeppni hefst kl. 10:00:
Fjórgangur: opinn flokkur V2, barnaflokkur V5, unglingaflokkur V2 og ungmennaflokkur V2
Fimmgangur F2: opinn flokkur
Tölt T7: barnaflokkur
Tölt T3: unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur og 1. flokkur
Úrslit:
Fjórgangur: opinn flokkur, barnaflokkur, unglingaflokkur og ungmennaflokkur
Fimmgangur: opinn flokkur
Pollaflokkur, frjáls aðferð
Tölt: barnaflokkur, unglingafl., ungmennafl. og opinn flokkur
100 m skeið (flugskeið)
Takið eftir:
· Í barnaflokki verður keppt í V5 (frjáls ferð á tölti, brokk, fet og stökk) og í T7 (hægt tölt og tölt á frjálsri ferð). Í skráningarkerfinu heitir fjórgangurinn samt V2 í barnaflokki eins og í hinum flokkunum.
· Ef þátttaka verður næg verður opnum flokki (þ.e. fullorðnum) í tölti nú skipt upp í 1. og 2. flokk. Keppendur raða sér sjálfir í flokk eftir getu og keppnisreynslu.
Skráningar:
Skráning er í Skráningakerfi SportFengs eins og venjulega. Opið er fyrir skráningar til kl. 20:00 fimmtudaginn 20. apríl. Sama gildir um greiðslu skráningagjalda en gjaldið er 1.500 krónur í barna-, unglinga- og ungmennaflokk en 2.500 kr. í fullorðinsflokka. Pollar eru skráðir á mótsstað eða með tölvupósti til Svölu eða Þórðar. Það er ekkert skráningagjald í pollaflokkinn. Aðstoð við skráningar veita:
Svala í 861 4466 eða budardalur@simnet.is
Þórður í 893 1125 eða thoing@centrum.is
Mótanefnd Glaðs
- 1