Blogghistorik: 2012 Nästa sida
30.04.2012 22:09
Íþróttamót
Opið hestaíþróttamót Snæfellings
Opna íþróttamót Snæfellings verður haldið í
Grundarfirði laugardaginn 12, maí
Mótið hefst kl. 10:00
Dagskrá:
(háð nægri þátttöku í öllum flokkum)
Þulur
stjórnar keppni og eru 2 inná í einu.
Forkeppni
Fjórgangur: 1, flokkur,
2, flokkur, barna-, unglinga- og ungmennaflokkur
Fimmgangur: 1, flokkur, 2, flokkur
Tölt: Barna-,
unglinga-, ungmennaflokkur og 2, flokkur, 1, flokkur,
Pollaflokkur, þar má
teyma undir eða ríða sjálfur, allir fá þátttökupening.
Úrslit
Fjórgangur: 1, flokkur,
2, flokkur barna-, unglinga- og
ungmennaflokkur
Fimmgangur: 1, flokkur, 2, flokkur
Tölt: Barna-,
unglinga-, ungmennaflokkur, og 2,
flokkur, 1, flokkur,
100 m skeið: 1, flokkur
Gæðingaskeið 1, flokkur
Skráning hjá
Ásdísi í síma: 845 8828 eða á netfangið asdis@hrisdalur.is
Við skráningu þarf að koma fram
keppnisflokkur, kennitala knapa, skráningarnúmer hests og upp á hvora hönd
knapi vill hefja keppni.
2, flokkur er minna keppnisvanir.
Tekið er við skráningum til miðvikudagsins 9. maí kl. 22
Skráningargjald er 2500 kr. en 2000
kr. fyrir skuldlausa félaga, fyrir hverja skráningu í öllum flokkum nema í
barna- og unglingaflokki, en þar er skráningargjaldið kr. 500 fyrir hverja
skráningu.
Skráningargjöld leggist inná reikning 0191-26-876 kt.
440992-2189
fyrir klukkan 22 miðvikdaginn 9. maí
annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista.
Sendið kvittun á netfangið asdis@hrisdalur.is og setja í skýringu, íþróttamót 2012
Stjórnin
24.04.2012 12:14
Glaður
___________________________________________________________________
Íþróttamót
Glaðs
Opna
íþróttamót Glaðs verður haldið í Búðardal þriðjudaginn 1. maí.
Mótið hefst kl. 10:00.
Dagskrá: (háð nægri þátttöku í öllum flokkum)
Forkeppni
Fjórgangur:
Opinn flokkur, barna-, unglinga- og ungmennaflokkur
Fimmgangur:
Opinn flokkur
Tölt:
Barna-, unglinga-, ungmenna- og opinn flokkur
Úrslit
Fjórgangur:
Opinn flokkur, barna-, unglinga- og ungmennaflokkur
Fimmgangur:
Opinn flokkur
Tölt:
Barna-, unglinga-, ungmenna- og opinn flokkur
100
m skeið: Opinn flokkur
Skráningar
fara fram hjá:
Þórði
s: 434 1171, netfang: thoing@centrum.is
Svölu
s: 434 1195, netfang: budardalur@simnet.is
Herdísí
s: 434 1663, netfang: herdis@audarskoli.is
Við
skráningu þarf kennitölu knapa, skráningarnúmer hests, upp á hvora hönd knapi
vill hefja keppni og fyrir hvaða félag er keppt. Tekið er
við skráningum til laugardagsins 28. apríl. Skráningargjald er 1.500 kr. fyrir
hverja skráningu.
Verðlaun
verða afhent fyrir samanlagða stigakeppni vetrarins.
10.04.2012 12:50
Húsasmiðjumót
10.04.2012 12:48
Stórdansleikur í Faxaborg
Stórdansleikur í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi,
síðasta vetrardag miðvikudaginn 18. apríl 2012 frá kl. 23:00 til 03:00
Ingó og Veðurguðirnir halda upp fjörinu.
Aldurstakmark 16 ár og miðaverð 3.000 kr.
03.04.2012 16:39
Hesteigendafélag Grundarfjarðar
PÁSKAMÓT
Páskamót Hestaeigendafélags Grundarfjarðar verður haldið
laugardagin 7. apríl og hefst kl 10:00. Keppt verður í hefðbundnum greinum,
skráning á staðnum.
Sú nýbreytni verður tekin upp að keppt verður í liðakeppni á eftir
barnahringnum. Liðakeppnin felst í því að þrír eru saman í liði, sá fyrsti
ríður einn hring á tölti/brokki, númer tvo hleypur á tveimur jafnfljótum hálfan
hring og sest síðan í hjólbörur sem sá þriðji keyrir í mark. Eitt lið verður í
brautini í einu og keppt verður um besta tíman. Ef hestur hleypur upp af gangi
þá bætast við 15 sek á tíman. Núna er bara að safna saman í lið, skíra það
frumlegu nafni og hafa gaman
01.04.2012 22:05
Aðalfundur
Aðalfundur Snæfellings var haldinn í Stykkishólmi miðvikudaginn 28. mars
Á fundinum var nokkrum félagsmönnum þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins og þeir gerðir að heiðursfélögum.
Formaður Snæfellings afhendir Leifi Kr. Jóhannessyni heiðurskjöld, en Leifur er hvatamaður að stofnun Snæfellings
Efri röð
Gunnar Sturluson formaður, Leifur Kr. Jóhannesson,Tryggvi Gunnarsson, Högni Bæringsson, Hildibrandur Bjarnason,
Neðri röð Sesselja Þorsteinsdóttir, Ragnar Hallsson, Gunnar Kristjánsson. Á myndina vantar Krístínu Nóadóttir
Á fundinn kom Sigtryggur Veigar frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og hélt áhugaverðan fyrirlestur um húsvist hrossa. Þá fóru fram formannsskipti og er nýr formaður Ásdís Ólöf Sigurðardóttir á Eiðhúsum í Eyja- og Miklaholtshreppi, aðrir í stjórn eru Sæþór Þorbergsson, Stykkishólmi, varaformaður, Herborg Sigríður Sigurðardóttir, Bjarnarhöfn í Helgafellssveit, ritari, Ólafur Tryggvason Grundarfirði, gjaldkeri, og Sigríður Sóldal, Stykkishólmi, meðstjórnandi.
- 1