Blogghistorik: 2016 N/A Blog|Month_11
16.11.2016 15:09
Uppskeruhátíð
15.11.2016 22:56
Uppskeruhátíð Snæfellings

Uppskeruhátíð
Snæfellings
Laugardaginn 26. nóvember kl. 19.30
borðhald hefst uppúr kl. 20.00
Í Félagsheimilinu Klifi
Ólafsvík
Maturinn kostar 2800 kr. á mann og
1500 kr. fyrir 16 ára og yngri.
Veitt verða verðlaun fyrir góðan árangur á árinu.
· Ræktunarbú ársins
· Viðurkenningar til knapa
· Knapi ársins
· Þotuskjöldurinn verður afhentur
Veglegir vinningar verða í happdrættinu.
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Látið vita með þátttöku í síðasta lagi miðvikudaginn 23. november kl. 20
í netfangið asdissig67@gmail.com herborgsig@gmail.com einnig í síma 893 1584 Sigga
eða olafur@fsn.is
Allir velkomnir.
14.11.2016 10:12
Árshátíð hestamanna.
Árshátíð hestamanna á Vesturlandi   verður haldin þann 19. nóvember 2016 
 
 á hinum margrómaða sælustað, Hótel Glym í Hvalfirði 
 
Þessi virðulega samkoma vestlenskra hestamanna  byrjar kl 19:30 með fordrykk að hætti Glyms. Borðhald hefst kl. 20:00.  Hótel Glymur býður upp á sérstakt árshátíðartilboð á borðvíni og á barnum verður tilboð á bjór og sérstökum hestamannadrukk. Skemmtidagskrá með Haraldi Benediktssyni bónda og þingmanni  frá Vestri-Reyni  sem sérlegum ræðumanni kvöldsins og veislustjórn í höndum Dreyrafélaga.  Stuðbandið Skaramú með Dreyrasnótinni söngelsku, Ástu Marý Stefánsdóttur,  mun leika fyrir dansi. 
 
Boðið verður upp á: - Sjávarréttasúpa með heimabökuðu brauði - Fennilgrafið foladafille með sólþurrkuðum tómötum og fetaosti - Lambafille með rótargrænmeti, kartöflum og bláberjasósu - Súkkulaði kaka með heimagerðum ís 
Verð: Matur og dansiball  9200 kr. á mann. Matur, dansleikur, morgunverðar hlaðborð og gisting í einsmanns herbergi. 20.900 kr á mann og í 2ja manna herbergi 16.900 kr á mann. 

 
 
 
 
Nokkur atriði sem gott er að vita um: -Það eru yndislegir heitir pottar við hótelið sem gestir mega nota  frá morgni til miðnættis. -Við hestamenn höfum til afnota allt hótelið og litlu húsin á  svæði Hótels Glyms. :-) - Hótelherbergin og húsin eru tilbúin kl 15 á laugardegi og brottför úr herbergjum er kl 12 á hádegi daginn eftir.  Morgunverðarhlaðborð er frá kl 9-11. -Gestir hótelsins mega ekki vera með eigið áfengi í almennum rýmum hótelsins.  
 
 
 Pantanir berist á netfangið dreyri@gmail.com  
 
Ef þið hafið ekki komið á Hótel Glym þá er hægt að skoða myndir og annað á www.hotelglymur.is. 
 
Það eru  ALLIR hestunnendur velkomnir á árshátíðina.  
 
 Með gleðikveðju Hestamannafélagið Dreyri. 
13.11.2016 19:43
Breytt verð á árshátíðinni
Við náðum hagstæðari samningum vegna gistingar á árshátíðinni á Hótel Glym og tilkynnum hér með nýtt verð:
16.900 kr á mann í 2ja manna herb. (matur, ball, gisting og morgunverður) og 20.900 á mann í einstakl.herb. Og hafið í huga að þetta er á einu besta hóteli landssins  :-) Breytt auglýsing kemur á morgun. Pantið á dreyri@gmail.com. Þetta verður gaman
:-) Breytt auglýsing kemur á morgun. Pantið á dreyri@gmail.com. Þetta verður gaman
09.11.2016 20:31
Uppskeruhátið Snæfellings
Uppskeruhátíð Snæfellings verði haldin í Klifi
laugardagskvöldið 26. nóvember nánari dagskrá síðar
02.11.2016 23:06
Árshátíð Vesturlands
Halló krakkar.
Það lítur ekkert sérlega vel út með pantanir á þessa árshátíð. :-(
Væru þið til í að pota í síðasta sinn í ykkar félagsmenn. Lokafrestur 5. nóv.
- 1
