08.11.2021 17:05
Uppskeruhátíð Snæfellings árið 2021
Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Snæfellings 2021 fór fram í gærkvöldi. Hefð er fyrir því að veita knöpum í barna, unglinga og unglingaflokki í félaginu hvatningarverðlaun fyrir þátttöku í mótum á afstöðnu tímabili.
Hér er mynd af knöpum sem hlutu viðurkenningu í barnaflokki árið 2021 ásamt Herborgu Sigríði formanni félagsins
Magnús Ingi Sigfússon, Haukur Orri Bergmann Heiðarsson, Kristín Lára Eggertsdóttir, Sól Jónsdóttir - á myndina vantar Ara Osterhammer Gunnarsson,Írisi Önnu Sigfúsdóttur og Sölva Frey Sóldal Jóhannsson
Knapar sem hlutu viðurkenningu í unglingaflokki árið 2021 ásamt Herborgu Sigríði formanni félagsins.
Gísli Sigurbjörnsson, Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir, Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir,Hera Guðrún Ragnarsdóttir, Signý Ósk Sævarsdóttir, Valdís María Eggertsdóttir - á myndina vantar Helgu Sóleyju Ásgeirsdóttur
![]() |
Knapar sem hlutu viðurkenningu í ungmennaflokki árið 2021 ásamt Herborgu Sigríði formanni félagsins
Gróa Hinriksdóttir og Inga Dóra Sigurbjörnsdóttir - á myndina vantar Ingu Dís Víkingsdóttur og Tinnu Guðrúnu Alexandersdóttur
![]() |
Veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu í barna, unglinga og ungmennaflokki en það voru þau Haukur Orri Bergmann Heiðarsson sem hlaut þau verðlaun í barnaflokki, Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir sem hlaut þau verðlaun í unglingaflokki og Inga Dís Víkingsdóttir sem hlaut þau verðlaun í ungmennaflokki.
Hér er mynd af systkinunum Hauki Orra og Hörpu Dögg ásamt Herborgu Sigríði formanni félagsins og Halldóru Einarsdóttur sem tók á móti verðlaununum fyrir hönd Ingu Dísar Víkingsdóttur.
![]() |
Knapi ársins hjá Hestamannafélaginu Snæfelling árið 2021 er Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir.
Frábær árangur hjá Hörpu Dögg í unglingaflokk á árinu. Hefur hún tekið þátt í fjölda móta og staðið sig mjög vel og verið glæsilegur fulltrúi Snæfelling innan vallar sem utan.
Hennar helstu afrek árið 2021 voru:
Vann fjórganginn í Meistardeild Líflands og æskunnar.
Á mótunum hjá Snæfelling vann hún bæði fjórganginn og tölt á íþróttamótinu og var þar með samanlagður sigurvegari í unglingaflokki. Á hestaþinginu var hún efst í sínum flokk og valin efnilegasti knapinn.
Á Íþróttamóti hjá Spretti var hún í 2.sæti í T4
WR íþróttamót Geysis haldið á Hellu, þar keppir hún á Þyt frá Stykkishólmi og vinnur bæði T4 slaktaumatölt og fjórgang. Er líka á Öbbu frá Minni Reykjum og þær voru í 4 sæti í T3. Á Mosfellsbæjarmeistaramótinu vinnur hún fjórganginn og er í 3. sæti í T3 tölti. Á Fjórðungsmóti Vesturlands er hún í 4. sæti í unglingaflokk í forkeppni og í T3 er hún í 1. - 2. sæti.
Íþróttamót Borgfirðings mætti hún með 4 hross og stóð sig gríðarlega vel á þeim öllum
Á Reykjavíkurmeistarmóti eru Harpa og Þytur í 3. sæti í slaktaumatölti T4 og 2. sæti í fjórgang V2
Íslandsmót barna og unglinga á Þyt í T4 Tölt í 6. sæti, í Fimi unglinga eru þau í 3 sæti.
![]() |
Veittar voru viðurkenningar fyrir fyrir efstu hryssu og efsta stóðhest í hverjum flokki
Efsta 4 v hryssa er Röst frá Bergi - aðaleinkunn 8,04 - Ræktendur og eigendur eru Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson.
Efsta 5 v hryssa er Hetta frá Söðulsholti - aðaleinkunn 8,27 - Ræktandi er Söðulsholt ehf.
Efsta 6 v hryssa er Sandvík frá Bergi - aðaleinkunn 8,24 - Ræktandi og eigandi er Jón Bjarni Þorvarðarson
Efsta 7 v hryssa er Drótt frá Brautarholti - aðaleinkunn 8,17 -Ræktendur og eigendur eru Snorri Kristjánsson, Björn Kristjánsson og Þrándur Kristjánsson.
|
||
![]() |
Efsti 4v stóðhestur er Sesar frá Naustum - aðaleinkunn 7,84 - Ræktandi og eigandi er Illugi Guðmar Pálsson
Efsti 5 v stóðhestur er Hlýri frá Bergi - aðaleinkunn 8,06 - Ræktandi og eigandi er Anna Dóra Markúsdóttir
Efsti 7 v stóðhestur er Huginn frá Bergi - aðaleinkunn 8,55 - Ræktandi og eigandi er Anna Dóra Markúsdóttir
![]() |
Ræktunarbú ársins 2021
Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson á Bergi fengu viðurkenningu fyrir ræktunarbú ársins. Frá þeim voru sýnd fjöldi kynbótahrossa með góðum árangri. Hér má sjá þær mæðgur Önnu Dóru og Sól taka við viðurkenningunni frá Herborgu Sigríði formanni félagsins.
![]() |
Þotuskjöldurinn
Þotuskjöldurinn er afhentur þeim félagsmanni sem skarað hefur fram úr á sviði ræktunar, reiðmennsku eða félagsmála. Skjöldurinn er viðurkenning sem sem Leifur Kr. Jóhannesson fyrrverandi ráðunautur, ræktandi og einn af stofnendum Snæfellings, gaf félaginu til minningar um heiðursverðlauna hryssu sína Þotu frá Innra-Leiti
Sigrún Ólafsdóttir hlýtur skjöldinn að þessu sinni .
Sigrún hefur lagt félaginu og hestamennskunni mikið lið í félagsmálum og verið óeigingjörn á sitt starf fyrir okkur hestamenn. Sigrún hefur víða komið við í félaginu okkar. Meðal annars var hún formaður Snæfellings árin 2003 til 2007 og víðar hefur hún lagt til sín störf og var meðal annars formaður félags tamningamanna árin 2008 til 2013 Þau eru líka orðin ansi mörg hestamannamótin stór og smá sem Sigrún hefur komið að þulastörfum. Það er alltaf gott að leita til Sigrúnar um ósk um framlag til starfa okkar hestamanna.
Stjórn Snæfelling þakkar Sigrúnu kærlega fyrir allt hennar frábæra starf í gegnum tíðina fyrir félagið.
![]() |
Myndir: Íris Huld Sigurbjörnsdóttir
Eftirtaldir gáfu vinninga í happdrættið og þökkum við kærlega fyrir stuðninginn.
Bjargarsteinn, Kaffi59, Klifurhúsið i Grundarfirði, Bkóngur, Dísarbyggð, FB sport, Blossi, Eiðfaxi, Alendis TV, Food station, Ice Hest, Lífland, Hrímnir, Storm Rather Húsasmiðjan, KB, Guðný Margrét, Ásdís ´Ólöf Sigurðardóttir, KG fiskverkun, Hótel Búðir, Viðvík, Gunnar Haldórsson Arnbjörgum. Ólafur Tryggvason, Berg, Lárus Ástmar Hannesson, Friðborg, Skúrinn, Sæferðir, Hótel Franiskus, Narfeyrarstofa, Nesbrauð, Þórsnes og Skipavík.
14.10.2021 14:55
Uppskeruhátið 2021
Uppskeruhátíð
Snæfellings
2021
Föstudaginn 5. nóvember
Félagsheimilið Skjöldur
Húsið opnar kl 19.30
Maturinn kosta 3.000 kr á manninn
1.500 kr fyrir 16 ára og yngri
Veitt verða verðlaun fyrir góðan árangur á árinu.
Ræktunarbú ársins
Viðurkenningar til knapa
Knapi ársins
Knapi ársins flokkana
Þotuskjöldurinn afhentur
Veglegir vinningar verða í happdrættinu.
Miðaverð aðeins 1.500 kr.
Látið vita með þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 2. nóvember
netfangið nadinew@simnet.is eða í síma 862 3570 Nadine
Allir velkomnir
05.07.2021 23:15
Sæl öll
Nú hefst vinna félagana sem standa að FM 21 í Borgarnesi við að setja upp mótið þó okkur handtök ef þið eigið lausa stund og viljið rétta hjálparhönd.
Dómhúsin eru að koma að norðan í nótt og það þarf að setja þau upp á morgun ásamt fleiri verkefnum sem eru eftir. Margar hendur vinna létt verk. Trú ekki öðru en að einhverjir hafi tíma til að aðstoða einhvern tíma á morgun. Það verður byrjað í fyrramálið og verið að eitthvað fram á kvöld.. Endilega hafið samband við Óla og látið vita af ykkur 8918401
13.06.2021 22:30
Frábæru Hestaþingi Snæfellings og úrtöku fyrir Fjórðungsmót 2021 lokið
Hestaþing Snæfellings og úrtaka fyrir Fjórðungsmót 2021 var haldið laugardaginn 12. maí í Stykkishólmi. Hestakosturinn var frábær, þátttaka góð og veðrið lék við mótsgesti.
Í A flokki var það Sægrímur frá Bergi sem stóð efstur eftir forkeppni, Viðar Ingólfsson reið Sægrími og hlutu þeir einkunnina 8,69.
Í B flokki var það Steggur frá Hrísdal, riðinn af Siguroddi Péturssyni sem stóð efstur eftir forkeppni með einkunnina 8,70
Hestur mótsins valinn af dómurum var Sægrímur frá Bergi.
Hryssa mótsins valin af dómurum var Eyja frá Hrísdal.
Knapi mótsins valinn af dómurum var Siguroddur Pétursson og efnilegasti knapi mótsins valinn af dómurum var Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir.
Hér fyrir neðan má sjá heildarúrslit mótsins:
Hér koma svo nokkrar myndir frá mótsdegi
Haukur Orri Bergmann Heiðarsson og Abba frá Minni Reykjum
Ari Osterhammer Gunnarsson og Bára frá Brimilsvöllum
Sól Jónsdóttir og Seygla frá Bjarnarhöfn
Kristín Lára Eggertsdóttir og Stjarna frá Hjarðarfelli
Haukur og Ari í úrslitum
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir og Þytur frá Stykkishólmi
Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir og Hylling frá Minni-Borg
Signý Ósk Sævarsdóttir og Grund frá Kóngsbakka
Hera Guðrún Ragnarsdóttir og Hamar frá Hrappsstöðum
Gísli Sigurbjörnsson og Drottning frá Minni - Borg
Valdís María Eggertsdóttir og Kvöldsól frá Bjarghúsum
Inga Dís Víkingsdóttir og Ósk frá Hafragili
Tinna Guðrún Alexandersdóttir og Garpur frá Ytri - Kóngsbakka
Inga Dóra Sigurbjörnsdóttir og Hringur frá Minni - Borg
Gróa Hinriksdóttir og Gullmoli frá Bessastöðum
Siguroddur Pétursson og Goði frá Bjarnarhöfn
Gunnar Sturluson og Lyfting frá Kvistum
Siguroddur Pétursson og Goði frá Bjarnarhöfn
Hrefna Rós Lárusdóttir og Hnokki frá Reykhólum
Ásdís og Siguroddur að fara yfir málin
08.06.2021 13:07
Afmæli Þjóðgarðarins
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull fagnar 20 ára afmæli 28. júní næstkomandi.
Í tilefni af því verður afmælisdagskrá á vegum þjóðgarðsins alla vikuna frá 19. júní – 27. júní.
Sunnudaginn 27. júní er fyrirhuguð mikil afmælisdagskrá á Malarrifi sem byrjar kl: 14:00.
Einn af viðburðunum á sunnudeginum 27. júní er að hafa hesta til að teyma undir börnum frá ca 14:30 - 16:00.
Við erum því að leita til hestamanna á Snæfellsnesi sem gætu komið með þæga hesta og teymd undir börnunum.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt hafið samband við Eddu Báru í síma: 865-1688 eða Lindu Björk í netfangið: linda@ust.is
26.05.2021 09:46
Sýning ræktunarbúa á Fjórðungsmóti 2021
Sýningar ræktunarbúa skipa ávallt heiðurssess á Fjórðungsmótum, og á Fjórðungsmóti 2021 í Borgarnesi verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við 10 ræktunarbú. Sýning ræktunarbúa eru áætluð á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 9. júlí eftir kl. 19:00 og mun áhorfendum verða boðið að taka þátt við að velja besta ræktunarbúið með kosningu.
Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. Sýningartími á hvert bú er miðað við 5 mínútur. Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna. Fótaskoðun verður viðhöfð og gilda reglur gæðingakeppni þar um, auk þeirra viðmiðana um heilbrigði sem mótstjórn FM setur. Miðað er við að 4 - 8 hross séu í hópnum, og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.
Þátttakendur velja tónlist sjálfir og skila inn skriflega texta fyrir þul hvernig búið skuli kynnt. Hálf síða í mótaskrá fylgir til kynningar á búinu og þeim hestum sem koma fram í sýningunni en forsvarsmenn búanna verða að skila inn upplýsingum fyrir 20. Júní.
Ræktunarbú og Keppnishestabú ársins 2020 eru boðin til mótsins og munu þau koma fram ásamt verðlaunabúinu á kvöldvöku laugardagskvöldsins 10. júlí.
Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með sinn hóp á Fjórðungsmóti 2021 eru beðnir að senda inn umsókn um slíkt og athugið að gefa upp upplýsingar um hvaða hross er stefnt með á sýninguna. Dregin verða svo 10 bú til þátttöku úr innsendum umsóknum.
Þáttökugjaldið er kr.60.000.
Umsóknarfrestur er til 20. júní og verður tilkynnt þann 25. júní hvaða ræktunarbú munu taka þátt.
Umsóknir skulu sendar á netfangið fjordungsmot2021@gmail.com
17.05.2021 01:08
Undirbúningur fyrir keppni.
Félagið hefur ákveðið að niðurgreiða þetta námskeið um 10.000 kr. fyrir þau börn, unglinga og ungmenni sem keppa undir merkjum Snæfellings.
Boðið verður uppá námskeið fyrir úrtöku fyrir Fjórðungsmót.
Fjórir 30 mínútu reiðtímar á nemanda og einn í einu annað hvort inni í reiðskemmu eða á reiðvelli.
Námskeiðið kostar 20.000 kr.
Börn, unglingar og ungmenni ganga fyrir.
Skráningarfrestur er til 19 maí. á netfangið asdissig67@gmail.com
Leiðbeinendur verða Siguroddur og Ásdís
15.05.2021 02:03
Hestaþing Snæfellings
Opið Gæðingamót Snæfellings og úrtaka fyrir FM í Stykkishólmi laugardaginn 12. júní
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka.
A - flokkur
B - flokkur
B - flokkur 2. flokkur
B - flokkur Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Pollaflokkur
100 m skeið
Skráningfrestur í alla flokka er fram á miðnætti miðvikudaginn 9 júní nema í pollaflokk þá skráningu má senda á netfangið herborgsig@gmail.com
Farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com
Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist
Gjaldið er 4000 kr. á skráningu en í Barnaflokk, ungling og ungmenna er 3000 kr. Ekkert í pollaflokk.
Lagt inná reikning 191-26-00876 kennitala 4409922189 og senda kvittun á olafur@fsn.is
03.05.2021 13:46
Opið Íþróttamót Snæfellings
Opið íþróttamót Snæfellings fór fram sunnudaginn 2. maí í Grundarfirði. Mótið gekk vel í alla staði þó að aðeins hefði blásið um keppendur. Þáttaka var ágæt og keppendur að vanda til fyrirmyndar. Þökkum öllum þeim sem komu að mótinu keppendum, sjálfboðaliðum og dómurum.
Hér koma niðurstöður A- úrslita frá mótinu
Niðurstöður A – úrslita
Fjórgangur V2- 2.flokkur
- Íris Huld Sigurbjörnsdóttir og Gustur frá Stykkishólmi – Snæfellingur-einkunn 5.40
- Sæmundur Jónsson og Askur frá Stíghúsi – Skagfirðingur -einkunn 5,10
- Nadine Elisabeth Walter og Grund frá Kóngsbakka – Snæfellingur -einkunn 4,77
- Steinar Björnsson og Abbadís frá Þorbergsstöðum – Snæfellingur - einkunn 3,83
Fjórgangur V2 – Opinn flokkur
- Siguroddur Pétursson og Eyja frá Hrísdal – Snæfellingur - einkunn 6,93
- Lárus Ástmar Hannesson og Hergill frá Þjóðólfshaga 1 – Snæfellingur- einkunn 6,50
- Gunnar Sturluson og Harpa frá Hrísdal – Snæfellingur -einkunn 6,43
- Ásdís Sigurðardóttir og Bragi frá Hrísdal – Snæfellingur -einkunn 6,03
- Gunnar Tryggvason og Blakkur frá Brimilsvöllum- Snæfellingur- einkunn 5,53
Fjórgangur V2 – Ungmennaflokkur
- Inga Dís Víkingsdóttir og Ósk frá Hafragili – Snæfellingur -einkunn 6,30
- Hjördís Helma Jörgensdóttir og Hrafn frá Þúfu í Kjós – Dreyri - einkunn 5,87
- Ísólfur Ólafsson og Breki frá Leirulæk – Borfirðingur - einkunn 5,77
- Aníta Rós Kristjánsdóttir og Samba frá Reykjavík – Fákur - einkunn 5,50
- Ólöf Einarsdóttir og Jódís frá Kópavogi –Hending - einkunn 4,43
Fjórgangur V2 – Unglingaflokkur
- Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir og Þytur frá Stykkishólmi – Snæfellingur - einkunn 6,67
- Gísli Sigurbjörnsson og Drottning frá Minni-Borg – Snæfellingur -einkunn 4,50
- Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir og Hylling frá Minni-Borg – Snæfellingur -einkunn 4,10
Fjórgangur V2 – Barnaflokkur
- Ari Osterhammer Gunnarsson og Bára frá Brimilsvöllum – Snæfellingur -einkunn 5,10
- Haukur Orri Bergmann Heiðarsson og Abba frá Minni-Reykjum – Snæfellingur - einkunn 5,03
Fimmgangur F2 – Opinn flokkur
- Lárus Ástmar Hannesson og Skuggi frá Hríshóli 1 – Snæfellingur - einkunn 6,26
- Siguroddur Pétursson og Goði frá Bjarnarhöfn – Snæfellingur -einkunn 6,21
- Ísólfur Ólasfsson og Blær frá Breiðholti,Gbr. – Borgfirðingur -einkunn 6,02
- Gústav Ívarsson og Jaðar frá Grundarfirði – Snæfellingur -einkunn 5,69
- Ólafur Tryggvason og Fiðla frá Grundarfirði – Snæfellingur -einkunn 4.81
Tölt T3 - 2. Flokkur
- Sæmundur Jónsson og Askur frá Stíghúsi – Skagfirðingur- einkunn 6,44
- Veronika Osterhammer og Sprettur frá Brimilsvöllum – Snæfellingur -einkunn 6,0
- Steinar Björnsson og Gletta frá Kóngsbakka – Snæfellingur -einkunn 4,67
Tölt T3 – Opinn flokkur
- Siguroddur Pétursson og Eldborg frá Haukatungu Syðri 1 – Snæfellingur -einkunn 7,61
- Lárus Ástmar Hannesson og Hergill frá Þjóðólfshaga 1 – Snæfellingur- einkunn 6,67
- Hrefna Rós Lárusdóttir og Stormur frá Stíghúsi – Snæfellingur -einkunn 6,22
- Ásdís Sigurðardóttir og Bragi frá Hrísdal – Snæfellingur -einkunn 6,17
- Gunnar Sturluson og Harpa frá Hrísdal – Snæfellingur- einkunn 6,06
Tölt T3 – Ungmennaflokkur
- Inga Dís Víkingsdóttir og Ósk frá Hafragili – Snæfellingur- einkunn 6,61
- Hjördís Helma Jörgensdóttir og Hrafn frá Þúfu í Kjós – Dreyri -einkunn 5,94
- Inga Dóra Sigurbjörnsdóttir og Hringur frá Minni - Borg– Snæfellingur -einkunn 4,78
- Gróa Hinriksdóttir og Katla Frá Reykhólum – Snæfellingur -einkunn 4,11
- Ólöf Einarsdóttir og Jódís frá Kópavogi – Hending - einkunn 0,0
Tölt T3 – Unglingaflokkur
- Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir og Þytur frá Stykkishólmi – Snæfellingur- einkunn 6,72
2.– 3. Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir og Júlía frá Vegamótum – Snæfellingur -einkunn 4,61
2. – 3. Gísli Sigurbjörnsson og Drottning frá Minni-Borg – Snæfellingur -einkunn 4,61
Tölt T7 – Barnaflokkur
- Ari Osterhammer Gunnarsson og Bára frá Brimilsvöllum – Snæfellingur- einkunn 5,17
- Haukur Orri Bergmann Heiðarsson og Abba frá Minni-Reykjum – Snæfellingur -einkunn 5,0
Gæðingaskeið PP2 – Opinn flokkur
- Lárus Ástmar Hannesson og Dama frá Kóngsbakka – Snæfellingur -einkunn 6,80
- Hrefna Rós Lárusdóttir og Hnokki frá Reykhólum – Snæfellingur - einkunn 5,68
- Ólafur Tryggvason og Fiðla Frá Grundarfirði – Snæfellingur- einkunn 2,18
- Lárus Ástmar Hannesson og Skuggi frá Hríshóli 1 – Snæfellingur- einkunn 2,15
Samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina- 2.flokkur
Sæmundur Jónsson og Askur frá Stíghúsi
Samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina –opinn flokkur
Siguroddur Pétursson og Eyja frá Hrísdal
Samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina – ungmennaflokkur
Inga Dís Víkingsdóttir og Ósk frá Hafragili
Samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina –unglingaflokkur
Harpa Dögg Heiðarsdóttir og Þytur frá Stykkishólmi
Samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina – barnaflokkur
Haukur Orri Bergmann Heiðarsson og Abba frá Minni-Reykjum
Samanlagður sigurvegari fimmgangsgreina
Lárus Ástmar Hannesson og Dama frá Kóngsbakka
Stigahæsti knapi mótsins
Lárus Ástmar Hannesson
01.05.2021 19:12
Dagskrá
Kl 10
Fjórgangur - V2 -- 2 flokkur, 1 flokkur Ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur.
pollaflokkur
MATARHLÉ
Fimmgangur - F2 -- 1 flokkur
Tölt - T3 -- 2 Flokkur , 1 flokkur Ungmennaflokkur, unglingaflokkur,
Tölt - T7 -- barnaflokkur
20 MÍNÚTUR HLÉ
Úrslit Fjórgangur - V2 -- 2 flokkur, 1 flokkur Ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur,
**20 MÍNÚTUR HLÉ
Fimmgangur -F2 -- 1 flokkur
Tölt - T3 -- 2 flokkur, 1 flokkur, Ungmennaflokkur, unglingaflokkur,
T7 -- barnaflokkur
Gæðingaskeið
01.05.2021 09:30
Dagskrá
sunnudaginn 2. maí kl 10:00
Fjórgangur - V2
Ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur
10 MÍNÚTUR HLÉ
1 flokkur, 2 flokkur
Pollaflokkur
MATARHLÉ
Fimmgangur - F2
Tölt - T7 Barnaflokkur
Tölt - T3
Ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1 flokkur, 2 flokkur
20MÍNÚTUR HLÉ
Úrslit
Fjórgangur - V2
Ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1flokkur, 2 flokkur
20 MÍNÚTUR HLÉ
Fimmgangur 1 flokkur
T7 Barnaflokkur
T3 Ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1 flokkur, 2 flokkur
Gæðingaskeið
29.04.2021 10:23
Skáney
Helgarnámskeið að Skáney
Fórum með flottan hóp barna á Skáney um helgina þar sem þau voru í reiðkennslu hjá Hauki og Randi. Allir krakkarnir fengu 4 reiðtíma og svo var aðstoðað við hirðingu og gjafir í hesthúsinu.
Krakkarnir stóðu sig öll rosalega vel og hópurinn náði virkilega vel saman. Við fórum í leiki,fjallgöngu, skógarferðir,göngutúr um svæðið, fléttuðum nokkra hesta og margt fleira skemmtilegt.
Við áttum frábæran tíma saman á Skáney og krakkarnir skemmtu sér konunglega.
Sum þessara barna höfðu farið áður en önnur voru að koma í fyrsta sinn en öll áttu þau það sameiginlegt að ganga vel um, voru kurteis og ótrúlega hugrökk. Algjör fyrirmyndarbörn ??
Svona helgarnámskeið eru mjög mikilvæg fyrir hóp eins og okkar. Fyrir utan það að læra alveg helling um hestinn og reiðmennsku þá hefur svona helgi heilmikið félagslegt gildi fyrir börnin okkar í félaginu sem búa dreift og hittast kannski ekki mjög oft. Þarna hitta krakkarnir okkar aðra krakka með sameiginlegt áhugamál, fara í leiki og eyða miklum tíma saman heila helgi. Oft myndast dýrmæt vinasambönd sem er alveg ótrúlega mikilvægt og hvetur það börnin okkar líka til að halda áfram í hestamennskunni ??
Kv. Erna og Veronica