08.01.2012 12:20
Starfið framundan
Vetrarstarfið og næstu viðburðir
·
Tvö
mót í vetur, annars vegar töltmót, 27. janúar og þrí eða
fjórgangasmót, 9. mars í Söðulsholti
·
Fara
menningarferð 3. mars um Borgarfjörðinn
·
Tveir
dagar fyrir yngri kynslóðina í Reiðhöllinni í Grundarfirði, sunnudagana 12.
febrúar og 15. apríl, þar verða þrautabrautir, grill og reiðtúr ef veður
leyfir.
·
Aðalfundur
28. mars í Stykkishólmi.
·
Reyna
að hafa aftur reiðtúr á fjörurnar eins og var reynt s.l. vetur en veðrið
hamlaði því að að hægt væri að ferðast með hestakerrur síðast.
Úrtakan
fyrir Landsmót
Sameiginlega
úrtaka fyrir Landsmót með hinum félögunum á Vesturlandi laugardaginn 9. júní í
Borgarnesi
Íþróttamót
Íþróttamótið
í Grundarfirði 12. Maí
Hestaþing
Snæfellings
Stefnan
er að hafa Hestaþingið í tvo daga, helgina 6-7 júlí.
Bikarmót
Stefnt
er á bikarmót Vesturlands á Æðarodda eða Kaldármelum 25-26 ágúst.
Með bestu kveðju
Stjórnin
05.01.2012 23:51
Verðskrá
Verðskrá í Snæfellingshöllinni 2012
Ársaðgangur fyrir einn fullorðinn: 15.000 kr.
Ársaðgangur fyrir maka eða ungmenni í sömu fjölskyldu: 7.000 kr.
Ársaðgangur fyrir félagsmenn í Snæfellingi utan Grundarfjarðar 10.000 kr.
Ársaðgangur fyrir maka eða ungmenni í sömu fjölskyldu 5.000 kr.
Einkatími í eina klukkustund 2.000 kr.
Dagsleiga fyrir viðburð. 15.000 kr.
Dagspassi í opna tíma 500 kr.
Mánaðaraðgangur fyrir einn 5.000 kr.
50% álag fyrir þá sem ekki eru félagar.
Þegar keyptur er aðgangur skal leggja inn á reikning 0191-05-71590
í Landsbanka kt:580907-0590.
Nánari upplýsingar eru hjá Gunnari Kristjánssyni í síma 898 0325
05.01.2012 23:50
Umgengisreglur
Handhafar
árs- og mánaðaraðgangs hafa ótakmarkaðan aðgang að höllinni þegar hún er ekki í
annarri skipulagðri notkun t.d. námskeið,einkatíma og sýningar. Miðað er
við að höllin geti verið í notkun frá kl. 14:00 til 23:00.
Fullorðnir
handhafar árs- og mánaðarkorta mega hafa börn sín til 16 ára með sér í
höllinni án þess að greiða fyrir þau. Börnin mega ekki vera ein í
höllinni og eru þar ávallt á ábyrgð foreldranna.
Handhafar
árs- og mánaðaraðgangs hafa aðgang að sal hallarinnar .
Þeir
sem keypt hafa einkatíma í höllinni hafa hana einir til umráða.
Notendur
hallarinnar skulu ganga snyrtilega um m.a. þrífa upp hestaskít eftir sína hesta
og annað rusl. Verði notendur uppvísir að slæmri umgengni er stjórn
hallarinnar heimilt að banna þeim afnot af höllinni. Séu þeir búnir að
greiða fyrir afnot af höllinni fram í tímann eiga þá ekki rétt á endurgreiðslu.
Bæði
notendur hallarinnar og gestir eru ávallt í höllinni á eigin ábyrgð.
Notendur
hallarinnar skulu sýna hver öðrum tillitssemi og vera öðrum til fyrirmyndar í
hvívetna.
Stjórn hallarinnar hefur
ávallt heimild til að taka höllina undir sýningar,einkatíma eða aðra starfsemi
og verða þá almennir notendur að víkja
09.12.2011 22:59
Frumtamninganámskeið
Tveggja helga námskeið
í Grundarfirði:
Dagana 21.-22. og
28.-29. Janúar
Kennari: Guðmundur M.
Skúlason Tamningamaður og Þjálfari FT
Á námskeiðinu kemur hver nemandi með eitt
eða tvö trippi og vinnur með þau báðar helgarnar.
Allir þátttakendur fá heimaverkefni til að
vinna með á milli helganna.
Það sem verður meðal annars farið
yfir á námskeiðinu er:
Atferli hestsins
(Hvernig hugsar hesturinn?)
Leiðtogahlutverk (hvað
getur maður fengið hestinn til að gera?)
Undirbúningur fyrir
frumtamningu (Undirbúningur er grunnur að góðum hlutum)
Frumtamning er grunnur
að góðri tamningu á forsendum hestsins.
Tveir bóklegir tímar (sameiginlegir
fyrir alla þátttakendur)
Átta verklegir tímar á hvern nemanda
sem kemur með tvö trippi.
Fjórir verklegir tímar á hvern
nemanda sem kemur með eitt trippi.
Samantekt í lok hvers dags þar sem
farið er yfir verkefni dagsins og spurningum svarað.
Miðað er við að allir þátttakendur
horfi á tímana hjá hinum og sjái mismunandi hestgerðir og hvernig þær bregðast
við á mismunandi hátt.
Þá geta allir fengið mikið út úr
námskeiðinu J
Námskeiðið kostar:
Nemandi með eitt hross 15000
Nemandi með tvö hross 25000
Síðasti skráningadagur 16. Janúar
Skráning og nánari upplýsingar í
síma:7702025 (Guðmundur)
24.11.2011 22:46
Ráðstefna um dómaramál
Þriðjudaginn 6. desember verður haldin opin ráðstefna um dómaramál. Ráðstefnan verður haldin í félagsheimili Fáks og hefst kl. 19.
- Sigurbjörn Bárðarson
- Olil Amble
- Guðlaugur Antonsson
- Lárus Ástmar Hannesson
- Pjetur N. Pjetursson
22.11.2011 01:05
1001 ÞJÓÐLEIÐ

Jónas Kristjánsson hefur áratugum saman skrásett þjóðleiðir á Íslandi og birtist afraksturinn í einstakri bók.
Í bókinni er yfir 1.000 reið- og gönguleiðum lýst og þær sýndar á vönduðum kortum. Stafrænn diskur sem gerir kleift að hlaða leiðunum inn í GPS-tæki fylgir.
KJÖRGRIPUR FYRIR ALLA HESTAMENN SEM FERÐAST UM LANDIÐ.
PANTANIR:
Sendið pantanir á tölvupósti: lhhestar@sogurutgafa.is (tilgreinið nafn, heimilisfang, símanúmer, fjölda eintaka og greiðslumáta (bankamillifærsla eða kreditkort). Eða hringið í síma 557 3100.
21.11.2011 21:24
Kortasjáin
15.11.2011 19:53
Hrossvest
![]()
Stjórnin.
14.11.2011 23:48
Vel heppnuð uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð Snæfellings tókst frábærlega og þökkum við þeim sem komu og tóku þátt í þessu með okkur. Mætingin var mjög góð þar sem um 70 manns komu saman að Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit, borðuðu veislumat og skemmtu sér. Það voru veitt verðlaun, dregið í happdrættinu og mikið sungið. Þökkum við öllum þeim sem gáfu vinninga í happdrættið og þeim Kóngsbakkamönnum fyrir að lána okkur aðstöðuna.

4 v Stássa frá Naustum bygg 8,05 hæf 8,00 aðal 8,02 Illugi Pálsson, Naustum
5 v
Skriða frá Bergi bygg 8,13 hæf 8,43 aðal 8,31 Jón Bjarni, Bergi
6 v
Brá frá Bergi bygg 8,02 hæf 8,40 aðal 8,25
Anna Dóra, Bergi
7 v
og eldri Pollý frá Leirulæk bygg 8,03 hæf 8,08 aðal 8,06 Hrísdalshestar sf
Ræktunarverðlaun fyrir stóðhesta

4 v Haki frá Bergi bygg 8,18 hæf 8,01 aðal 8,07 Jón Bjarni, Bergi
5 v Valur frá Keldudal bygg 7,89 hæf 8,30 aðal 8,13 Hrísdalshestar sf
6 v Sporður frá Bergi bygg 8,11 hæf 8,27 aðal 8,21 Jón Bjarni, Bergi
7 v og eldri Uggi frá Bergi bygg 8,24 hæf 8,79 aðal 8,57 Jón Bjarni, Bergi
Hvatningarverðlaun

Harpa Lilja Ólafsdóttir
Guðrún Ösp Ólafsdóttir
Arnar Ásbjörnsson
Margrét Þóra Sigurðardóttir
Knapi ársins

Siguroddur Pétursson Einnig voru veitt verðlaun fyrir Bestan árangur í yngri flokkum, þau fékk Guðný Margrét Siguroddsdóttir, en hún var ekki á staðnum til að taka á móti verðlaununum.
Ræktunarbú ársins og Þotuskjöldurinn.

Þotuskjöldinn og viðurkenningu fyrir ræktunarbú ársins fengu hjónin á Bergi í Eyrarsveit, Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson fyrir frábært ræktunarstarf, en s.l. 2 ár hafa þau verið tilnefnd til heiðursverðlauna Bændasamtaka Íslands.

Gunnar Sturluson formaður, Jón Bjarni og Sæmundur Runólfsson dtaðarhaldari
Staðarhaldarinn fékk þann heiður að velja flottasta höfuðfatið og hann sagði að það ekki spurningu að Jón Bjarni hefði verið með flottasta höfuðfatið.
![]()
13.11.2011 02:29
Myndir frá Halldísi

10.11.2011 22:12
Vætutíð
Holdhnjóskar er einskonar hrúður sem myndast í húð hrossa, oftast á lend, hrygg eða fótum. ORSAKIR: Vegna kulda og votviðris fara svokallaðir fitukirtlar í húð hrossa að framleiða of mikla fitu. Hún klístrast við hárin og það myndast einskonar hrúður.
Fitulagið á yfirborði húðarinnar er vörn hennar gegn ofþornun vegna hita og einnig gegn utanaðkomandi vætu, kulda og öðru áreyti. Nýjustu rannsóknir hérlendis hafa leitt í ljós, að frá 96% af hrossum með holdhnjóska ræktast bakterían dermatophilus congolensis. Þessi baktería lifir ágætu lífi á rakri húðinni.MEÐFERÐ: Mikilvægt er að taka hross inn á hús ef vart verður við holdhnjóska. Alls ekki reyna að losa upp hrúðrin með því að kroppa í þau, því þá myndast opin sár. Einnig mæli ég ekki með að setja parafínolíu á hrúðrin því raki/vatn getur legið undir olíunni og þá geta bakteríurnar lifað góðu lífi.
Til þess að gera hrossið reiðfært sem fyrst er best að láta það standa á þurrum og hlýjum stað. Ullarteppi hitar upp húðina og dregur fyrr úr bólgumyndun sem er til staðar í fitukyrtlunum. Þegar hnjóskarnir eru farnir að vaxa frá húðinni, þá fyrst má baða hestinn með mildri sápu til að losa upp þetta harða hrúður. Reynið síðan að þurrka húðina og hárin vel, (t.d. með handklæði eða jafnvel hárþurrku).
Þórunn Lára Þórarinsdóttir, dýralæknir
03.11.2011 23:37
Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð
Snæfellings
Föstudaginn 11.11.11 kl. 19:30
Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit
(í fjósinu sem hefur verið breytt í samkomusal)
Frjálslegur klæðnaður, gamli lopinn upplagður og
viðurkenning fyrir flottasta höfuðfatið.
Grillað verður á staðnum og kostar maturinn 2500 kr.
1500 kr. fyrir 16 ára og yngri
Fólk kemur með drykkjarföng með sér.
Veitt verða verðlaun fyrir góðan árangur á árinu
· Ræktunarbú ársins
· Hvatningarverðlaun til þeirra sem sýnt hafa góða takta í keppni
· Knapi ársins
· Þotuskjöldurinn verður afhentur
· Foladasýningin
Veglegir vinningar verða í happdrættinu
Miðaverð aðeins 1000kr.
Látið vita með þátttöku í síðasta lagi á miðvikudaginn 09.11 kl. 22
Vonumst til að sjá sem flesta
29.10.2011 21:01
3 efstu hryssurnar

