19.11.2010 21:21
Feldur frá Hæli
14.11.2010 21:05
Stjórnarfundur
13.11.2010 21:23
Happdrætti
Enn bætast við vinningar í happdrættið á uppskeruhátiðinni
Folatollur undir 1. verðlaunahestinn Feld frá Hæli sem er í eigu Eysteins Leifssonar.
Reiðtími hjá Birnu Tryggva reiðkennara á Stað
og gjafabréf hjá Knapanum í Borgarnesi.
12.11.2010 12:55
27 nóvember 2010 á Vegamótum
Margir góðir vinningar verða í happdrættinu á uppskeruhátið Snæfellings.
Meðal vinninga er folatollur undir Herkúles frá Grundarfirði.


Hvessi frá Ásbrú (B 8.15 H 7.94 A 8,02) syni Sömbu frá Miðsitju og Þóroddi frá Þóroddstöðum.
Hann er í eigu Unnar Guðbjartsdóttur og Ólafs Tryggvasonar í Grundarfirði.
Myndirnar eru teknar fyrsta vetradag eftir að Herkúles kom heim eftir sumarstörfin á Reykhólum og Bjarnarhöfn.
Í Bjarnarhöfn sinnt hann 1. verðlauna systrunum Heru og Perlu.
Á Reykhólum var hjá honum meðal annars Brynja í eigu Lárusar Hannessonar en hún er alsystir hinnar frábæru ræktunar hryssu Freydísi í eigu Ástu á Borgarlandi.
11.11.2010 14:55
félagsmót 2010

11.11.2010 13:56
Ótitlað
Dagsetningar Íslandsmóta

Íslandsmót fullorðinna verður haldið á Selfossi, af hestamannafélaginu Sleipni, dagana 14. - 16. júlí 2011.
Íslandsmót yngri flokka verður haldið í Keflavík, af hestamannafélaginu Mána, dagana 22. - 24. júlí 2011.
10.11.2010 23:53
Frábær bók frá Ingimar
![]() Þann 6. desember nk. kemur út einstök bók,Hrossafræði Ingimars. Áhugasömum kaupendum býðst að kaupa bókina í forsölu hér á vef Uppheima á sérstöku áskriftartilboði, aðeins kr. 4.980- (fullt verð kr. 5.980-). Sendingarkostnaður er ekki innfalinn í verði. Hér er loksins komið fram alhliða upplýsinga- og fræðirit um hesta, ritað af höfundi sem býr að ómældri þekkingu og reynslu, bæði á viðfangsefni sínu og eins hinu, að miðla til annarra. Ingimar Sveinsson hefur áratugum saman viðað að sér fróðleik um hesta og hestahald og efnistök hans eru skýr og aðgengileg. Hrossafræði Ingimars er mikið og glæsilegt rit í hvívetna, enda hefur höfundurinn unnið að verkinu í áratugi og viðað að sér þekkingu og reynslu ævina alla. Bókin er 334 bls. í stóru broti og öll litprentuð. Hana prýðir aragrúi ljósmynda víðs vegar að auk fjölda skýringateikninga og taflna. Bókin á tvímælalaust erindi til allra sem yndi hafa af hestum og hestamennsku, áhugafólks jafnt sem atvinnumanna. Ingimar Sveinsson á Hvanneyri er alinn upp á stórbýlinu Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði. Að loknu stúdentsprófi sigldi hann til Bandaríkjanna og lagði þar stund á háskólanám í búvísindum. Heim kominn starfaði Ingimar sem bóndi á Egilsstöðum allt þar til hann fluttist með fjölskyldu sína að Hvanneyri í Borgarfirði 1986, þar sem hann hefur starfað sem kennari og fræðari síðan. |
| Höfundur: Ingimar Sveinsson |
| Útgáfuár: 2010 |
| Hægt að panta á |
10.11.2010 23:31
Eru ekki allir ykkar hestar á sínum stað.
Fimmtudaginn 18. nóvember 2010 kl. 17:00 verða eftirtalin óskilahross, sem handsömuð voru í Borgarbyggð síðast liðið sumar og haust, boðin upp, hafi réttmætir eigandur ekki gefið sig fram áður:
1. Hestur, rauðblesóttur, IS 2004136915.
2. Hryssa, bleik, með mósóttu folaldi, IS 2006284378.
3. Hestur, brúnn, IS 2009101105.
4. Hestur, mósóttur, 2009101106.
5. Hestur, brúnn, IS 2005101103.
6. Hryssa, brún, IS 2003236914.
7. Hryssa, brún, IS 2001236911.
8. Hryssa, brún, IS 2007256383.
9. Hryssa, jörp, IS 2007201101.
10. Hryssa, bleik, IS 2007201107.
11. Hryssa, mósótt, IS 2007201103.
Uppboðið mun fara fram í Reiðhöllinni að Vindási (Faxaborg) norðan við Borgarnes.
Greiðsla skal fara fram við hamarshögg. Ekki verður tekið við greiðslum með ávísunum eða kreditkortum.
F.h. Sýslumannsins í Borgarnesi.
Jón Einarsson fulltrúi
09.11.2010 11:27
Ótitlað

Undan Dyn frá Hvammi og Freydísi frá
Borgarlandi Sköðulag 8.03 Hæfileikar 7.85 Aðaleinkun 7.93.
08.11.2010 20:16
Flott hjá Jón Bjarna og Önnu Dóru
Afhending viðurkenninga og verðlaunun sigurvegaranna fer fram á ráðstefnunni "Hrossarækt 2010" þann 20. nóvember næstkomandi.
08.11.2010 16:59
Uppskeruhátið
Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Snæfellings
Verður haldin laugardaginn 27. nóvember kl. 19 á veitingastofunni að Vegamótum á Snæfellsnesi. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Endilega taka kvöldið frá til að mæta, enda var mjög gaman hjá okkur á Narfeyrarstofu í fyrra.
Með kveðju frá stjórn Snæfellings
07.11.2010 22:43
Gunnar Sturluson varaformaður LH

06.11.2010 23:30
Sértilboð á eldsneyti og bílatengdum vörum til hestamanna


